Monday, April 7, 2014

Breytingar þessa viku. Keila og pizza fimmtudag og Páskaleikar Þriðjudag

Hæ hæ og takk fyrir frábæra helgi. Drengirnir til fyrirmyndar í einu og öllu og þéttur og góður foreldrahópur gerði þessa helgi hina mestu skemmtun og allt gekk eins og í sögu.

Þessi vika er aðeins frábrugðin öðrum.

Mánudagur  - Frí

Þriðjudagur Páskaleikarnir - þrautir og leikir og glæsileg verðlaun. Árbæjarskóli kl. 16:40
Fimmtudagur Keila og Pizza í Egilshöll kl. 18:30 - Keila í klukkutíma og matur kl. 19:30. Búið ca. 20:15

Ég geri ráð fyrir að allir mæti í keilu og pantaði fyrir 32 stráka. Þið þurfið því bara að láta mig vita ef ykkar kemst ekki. Ég þarf að vita það fyrir kl. 10 á morgun þriðjudag. 2000 kr. og greiðist á staðnum í seðlum.

Skólahúsin eru svo lokuð frá og með 14. apríl til 22. apríl og svo er líka lokað sumardaginn fyrsta (24. apríl) Það eru því engar æfingar 14,15 og 17. apríl og ég ætla svo að fá eina æfingu fyrir allan hópinn í Fylkishöll dagana 22. eða 23. apríl.

kv. Þjálfarar

Monday, March 31, 2014

Selfossmót liðskipan og upplýsingar



7. flokkur karla - Selfoss mót – tímasetningar og liðskipan
Laugardag og sunnudag 5. og 6. Apríl
Leikið í Vallaskóla og FSU (eru hlið við hlið)
Gist er í Vallaskóla og þar er einnig mötuneyti. Fylkir gistir í stofum 12 (lið 1,2 og 3) og 13 (lið 4,5 og 6) Tekið á móti fólki í anddyri og hægt að setja farangur í stofu fyrir fyrsta leik á laugardegi.
Kvöldvaka laugardagskvöld kl. 20:00 í íþróttahúsi Vallaskóla
Drengir eru á ábyrgð foreldra/forráðamanna á meðan á móti stendur

Liðin og tímasetningar leikja
Lið 1 – Mæting 13:30 laugardag
Benni Snær, Einar Ingi, Marteinn og Björn
Leikir laugardag 14:12, 14:48 og 15:24 í Vallaskóla og sunnudag 8:24, 9:00 og 9:36 í FSU
Lið 2 – Mæting 15:15 laugardag
Flóki, Róbert Örn, Steingrímur, Snæþór og Viktor Benóný
Leikir laugardag 16:00, 16:36 og 17:12 í Vallaskóla og sunndag 10:36, 11:12 og 11:48 í FSU
Lið 3 – Mæting 15:15 laugardag
Heiðar Máni, Dagur Snær, Sverrir Már og Jón Ingi
Leikir laugardag 16:12, 16:48 og 17:24 í Vallaskóla og sunnudag 10:24, 11:00 og 11:36 í FSU
Lið 4 – Mæting 16:45 laugardag
Halldór Viðar, Sölvi Fannar, Pálmi Snær, Trausti Freyr og Mikael
Leikir laugardag 17:36, 18:12 og 18:48 í FSU og sunnudag 10:00, 10:36 og 11:12 í Vallaskóla
Lið 5 – Mæting 17:00 laugardag
Ólafur Kári, Puká, Bergur, Kristján Ómar og Björgvin
Leikir laugardag 17:48, 18:24 og 19:00 í FSU og sunnudag 10:12, 10:48 og 11:24 í Vallaskóla
Lið 6 – Mæting 17:15 laugardag
Bjarki Fannar, Róbert Ómars, Nonni og Sveinn Nökkvi
Leikir laugardag 18:00, 18:36 og 19:12 í FSU og sunnudag 10:24, 11:00 og 11:36 í Vallaskóla

Matur
Kvöldmatur er frá 18:00-20:00
Morgunmatur er frá 7:30-9:30
Hádegismatur frá 11:00-13:00
Hentugur matartími fyrir Fylki
Kvöldmatur
Lið 1,2, og 3 kl. 18:00 (2 og 3 kl. 19 ef þau fara í sund á laugardegi) og Lið 4,5 og 6 kl. 19:30
Morgunmatur
Lið 1 kl. 7:45, Lið 2,3,4,5, og 6 kl. 9:15
Hádegismatur
Allir saman kl. 12:00 eða 12:30/13:00 ef sundið er eftir síðasta leik á sun hjá liðum 2-6.
Við verðum svo með eitthvað að maula á milli mála og hjálpa liðstjórar til með það, samlokur, ávextir safar o.fl.

Sund
Liðstjórar og foreldrar þurfa að fylgja þeim í sund og vera með þeim, almennar reglur um sundferðir gilda. Frítt ofaní fyrir liðstjóra
Hentugur tími í sund fyrir Fylki
Lið 1 – laugardag 16-18 eða sunnudag 10-12
Lið 2 og 3 – laugardag 17:30 – 19 eða sunnudag 11:20 – 12:30
Lið 4,5, og 6 – laugardag 15-16:30 eða sunnudag 11:45 – 13:00

Farangur
Vindsæng eða dýna, sæng eða svefnpoki, koddi
Föt til skiptana, íþróttaföt, sundföt, náttföt
Hreinlætisvörur og handklæði
MUNA AÐ MERKJA VEL ALLAN FATNAÐ OG FARANGUR
Annað
Símar, leikjatölvur og spjaldtölvur bannaðar á meðan mótið er í gangi.
Kostnaður
5500 kr. pr. Mann (óháð hvort gist er eða ekki)
Leggja inn á reikning 0537 26 850228 kt. 250577-5839 fyrir hádegi fimmtudaginn 3. Apríl
Senda staðfestingu á omarj@siminn.is

Breyting á æfingatíma í vikunni

Ein breyting þessa viku.
Æfing á miðvikudaginn kl. 18:00 í Norðlingaskóla, allir saman. Ekki æfing á fimmtudaginn.
Mánudagur og þriðjudagur eins og venjulega.

Liðin og tímasetningar fyrir Selfoss koma inn í kvöld.

kv. Þjálfarar

Wednesday, March 19, 2014

Æfingaleikur

Æfingaleikur laugardaginn 22. mars
Fylkishöll
Grótta kemur í heimsókn.
Skiptum í 2 hópa og annar mætir 12:30 og hinn 13:45.
Hópaskipting sett inn í kvöld eða á morgun.

Selfoss mót

Síðasta mót vetrarins á Selfossi 4. - 6. apríl

Skráning á mótið er hafin og ég ætla að biðja ykkur að setja komment á Facebook eða senda mér tölvupóst á omarj@siminn.is sem staðfestir það að ykkar drengur muni mæta. Stráka spila laugardag til sunnudags. Foreldrafundur verður haldinn þriðjudaginn 25. mars kl. 19:30 þar sem farið verður betur yfir skipulag og annað varðandi mótið.

Fyrirkomulag:

Helgina 4.-6. apríl verður Landsbankamótið í 7.flokki stráka og stelpna haldið á Selfossi.
Mótið er síðasta mót vetrarins.
Þetta er fjórða árið í röð sem 7.flokkur fær svona stórt mót og hefur þetta tekist mjög vel síðustu tvö ár.
Leikið er á þremur völlum í íþr.húsi Vallaskóla og á þremur völlum í íþr.húsi FSu. Aðeins eru 50 m.milli húsanna, gisting og matur eru í Vallaskóla.
Fyrirkomulagið er þannig að stelpurnar byrja klukkan fjögur á föstudegi og ljúka keppni um hádegi á laugardegi.
Þá taka strákarnir við og spila fram yfir hádegi á sunnudegi.
Þetta er mun stærra mót en fyrri mót vetrarins, öll lið leika 3-4 leiki hvorn dag.

Þátttökugjald er kr. 5.000 pr. þátttakanda, þetta er svokallað “pakkamót” og er innifalin gisting í eina nótt, tvær heitar máltíðir og morgunverður.
Einnig verður haldin kvöldvaka og frítt er í sund á meðan á móti stendur.
Foreldrar og þjálfarar gista frítt.

Monday, January 27, 2014

Ákamót laugardaginn 1. febrúar

Liðin og leikjaplan fyrir Ákamótið. Allir leikir á laugardaginn í Kórnum.
ATH! Það eru margir búnir að bætst við frá síðasta móti og við erum með 7 lið núna en voru 4 síðast. Ef einhver sem hefur verið að prófa en er ekki skráður í lið eða einhver sem að kemst ekki og er skráður þá látið mig vita.


7. flokkur karla 3. Mót Ákamótið
Íþróttahúsið Kórinn
Laugardaginn 1. febrúar 2013

Þátttökugjald 1000 kr. sem greiðist fyrir fyrsta leik (einn fjólublár eða tveir rauðir)

Fylkir – Blár  Völlur 1 og 2
Björn Austmar, Einar Ingi, Marteinn, Róbert Örn, Heiðar Máni
Laugardagur 1. feb. Mæting 8:40.
Leikir 9:00, 9:24, 10:12, 11:00 og 11:24

Fylkir – Rauður Völlur 1 og 2
Símon Orri, Jóhannes, Dagur Snær, Steingrímur
Laugardagur 1. feb. Mæting 11:50
Leikir 12:12, 12:36, 13:00 og 13:24

Fylkir – Grænn Völlur 1 og 2
Bjarki Steinsen, Grettir Þór, Jón Ingi og Sverrir Már
Laugardagur 1. feb. Mæting 13:40
Leikir 14:00, 14:48, 15:12 og 15:36 og 16:24

Fylkir – Gulur Völlur 1 og 2
Viktor Benóný, Mikael, Ari Tómas, Halldór Viðar
Laugardagur 1. feb. Mæting 14:15
Leikir 14:36, 15:00, 15:24, 16:12 og 16:36

Fylkir – Hvítur Völlur 3 og 4
Sölvi, Trausti Freyr, Ólafur Kári, Pálmi Snær
Laugardagur 1. feb. Mæting 13:50
Leikir 14:12, 14:36, 15:24, 16:12 og 16:36

Fylkir – Svartur Völlur 3 og 4
Björgvin, Bjarki Fannar, Kristján Ómar, Kári
Laugardagur 1. feb. Mæting 13:40
Leikir 14:00, 14:24, 14:48, 15:12 og 16:00

Fylkir – Appelsínugulur Völlur 3 og 4
Sveinn Nökkvi, Róbert, Nonni, Bergur, Puká
Laugardagur 1. feb. Mæting 11:05
Leikir 11:24, 11:48, 12:36, 13:00 og 13:48

Hafið samband ef eitthvað er óljóst eða ef einhver forföll verða.
Ómar
862-6207

Friday, January 24, 2014

Æfingatímar

Hæ hæ

Æfingatímamálið. Ekki er hægt að skipta upp hópnum á þriðjudögum þar sem ekki fæst annar tími samliggjandi. Ég vil ekki færa þetta yfir á mánudaga þar sem það býr til önnur vandamál, 4. flokkur kvenna fær minni tíma (ætlaði að taka hálfan sal af þeim í Fylkishöll), það er fótboltaæfing hjá þeim á mánudögum, það eru einhverjir í parkour á mánudögum, 19-20 er í seinna fallinu fyrir þennan aldur.

Ég mun halda áfram að vinna að lausn og við munum halda þessum tveimur tímum á þriðjudögum og fimmtudögum. Það verður þá alltaf skot og tækni á þriðjudögum og spila á fimmtudögum til að nýta sem best hvorn sal fyrir sig.

Einnig mun ég vera vakandi fyrir aukaæfingum eða æfingaleikjum sem hægt verður þá að bæta við eins og ég hef fengið tíma kl. 17 í Fylkishöll núna tvö miðvikudaga í röð. Það er alltaf eitthvað sem losnar og ég reyni að fá eins og ég get. En það yrði þá þriðja æfingin þá vikuna, held áfram þriðjudögum og fimmtudögum þrátt fyrir aukaæfingar. Læt alltaf vita tímanlega með þessar aukaæfingar.

Vonandi mun eitthvað opnast varðandi tímana en í augnablikinu er þetta besta lausnin að mínu mati. Æfingasókn drengjanna og framfarir hafa verið frábær það sem af er og gaman hversu margir nýir eru komnir inn í þetta.

Mér tókst ekki að finna tíma fyrir æfingaleik fyrir þetta mót en það verður aftur stefnt á það seinni partinn í febrúar.

Mótið næstu helgi er á laugardeginum 1. febrúar í Kórnum og spila öll 7 liðin okkar þann daginn. Liðskipan og leikjaplan kemur inn á næstu dögum.

kv. Ómar

Tuesday, January 14, 2014

Æfing fellur niður í dag

Æfing fellur niður þriðjudag vegna landsleiks Íslands og Ungverjalands á EM kl.17:00.
Í staðin verður æfing kl. 18:00 á miðvikudaginn í Fylkishöll.

Biðjið strákana endilega að láta þetta ganga í skólanum því það eru mögulega einhverjir sem eru ekki á Facebook.

Æfing svo á fimmtudag á venjulegum tíma í Norðlingaskóla kl. 18:00

kv. Ómar og Ástríður.