Tuesday, January 29, 2013

Mótið

Sælir strákar og foreldrar,

Hér að neðan er leikjaniðurröðun og liðaskipan komin inn. Ég vona að allir séu ánægðir með liðið sem þeir eru í. Liðin fimm sem skipað er í verða nefnd eftir stórliðum í Þýskalandi. Mótið fer fram á laugardaginn 2.febrúar í KÓRNUM!! (ég var áður búinn að nefna Digranes en svo er ekki)

------------------------------------------------------------------------------------------------------------


SG Flensburg-Handewitt

Liðsmenn:
Ívar
Björn
Óskar
Andri
Elías

Leikir:
9:12    Haukar- Fylkir
9:48    Fylkir- Grótta
10:12  HK- Fylkir
10:36  Fylkir- KR
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
THW Kiel

Liðsmenn:
Stefán
Knútur
Bjarki
Marteinn

Leikir:
11:12   Fram- Fylkir
11:48   Fylkir- HKR
12:12   Grótta- Fylkir
12:36   Fylkir- Þróttur
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Rhein-Neckar Löwen

Liðsmenn:
Emil Ásgeir
Óskar Borgþórs
Haraldur
Magnús

Leikir:
13:24   Fylkir- Fram
13:48   Fylkir- Víkingur
14:12   HK- Fylkir
14:48   Fylkir- Haukar
15:48   Stjarnan- Fylkir
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fuchse Berlin

Liðsmenn:
Ingimar
Arnór
Símon
Einar

Leikir:
15:12  Fylkir- Fram
15:36  Stjarnan- Fylkir
16:12  Fylkir- HK
17:00  HKR- Fylkir
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
HSV Hamburg

Liðsmenn:
Ásgeir
Jóhannes
Arnaldur
Svavar

Leikir:
16:12  Fylkir- ÍR
16:36  Fram- Fylkir
17:00  Grótta- Fylkir
17:24  Fylkir- Stjarnan
------------------------------------------------------------------------------------------------------------



Ef einhver kemst ekki á mótið er gríðarlega mikilvægt að láta mig vita svo ég geti gert ráðstafanir. Skyldi það  gerast að einhver kæmist ekki og sleppir að tilkynna mér það þarf liðið sem sá strákur er í að spila einum færri og það gæti eyðilagt fyrir hinum í liðinu.


kv, Hemmi þjálfari

s: 663-9443
e-mail: hemmi88@msn.com

Wednesday, January 23, 2013

Mótið

Sælir strákar og foreldrar,

Nú er ég kominn með niðurröðun leikja á mótinu og fyrirkomulagið er þannig að allir leikir okkar Fylkis-stráka eru spilaðir á laugardeginum.
Áður en ég skipti í lið þarf ég fleiri staðfestingar til þátttöku. Þegar þetta er skrifað hefur verið staðfest þátttaka fyrir 17 stráka sem er ekki nóg miðað við liðafjöldann sem ég skráði á mótið. Ég skráði 5 lið á mótið og þar sem lágmarksfjöldi í hverju liði er 4 þarf ég þrjá fleiri stráka, hið minnsta. Ef þeir verða ekki fleiri en 20 vil ég jafnvel fækka liðum og hafa einn varamann í hverju liði þar sem mín reynsla er sú að töluvert er um forföll hjá strákum á þessum aldri þegar um mót er að ræða.
Svo ég geti farið að skipuleggja þetta vil ég að foreldrar staðfesti þátttöku í síðasta lagi á föstudaginn.

Einnig vil ég biðja ykkur forráðamenn/foreldrar að ganga frá æfingagjöldum fyrir mótið.


kær kv,

Hemmi

e-mail: hemmi88@msn.com

Saturday, January 19, 2013

Staðfesting á mót og kuldaskór Arnalds!

Sælir strákar og foreldrar,

Á síðustu æfingu hefur líklega einhver tekið kuldaskóna hans Arnalds í misgripum. Stígvélin eru svört, loðfóðruð að innan og í stærð 37. Vinsamlegast athugið hvort ykkar strákur hafi óvart tekið vitlaus stígvél og ef svo er hafið þá samband við Eydís í síma 8984316.


Síðan vildi ég líka nefna með mótið. Það hafa alls átta strákar staðfest þátttöku á mótinu sem er 1-3 febrúar. Ef einhver á eftir að staðfesta, endilega gerið það strax með því að kommenta hér, hringja í mig í 6639443 eða senda mér e-mail á hemmi88@msn.com.
Einnig bið ég þá sem eiga eftir að greiða æfingagjöld að ljúka þeirri greiðslu sem allra fyrst þar sem þá peninga þarf m.a. til að greiða mér laun og halda deildinni gangandi.

Frekari upplýsinga um mótið er að vænta á næstu dögum.


kær kv,

Hemmi þjálfari

Thursday, January 3, 2013

Æfingar hefjast á mánudaginn

Sælir strákar og foreldrar,

Gleðilegt nýtt ár.

Eftir gott og langt frí hefjast æfingar næstkomandi mánudag (7.jan). Æfingataflan er sú sama og fyrir áramót þannig æfingin þá verður í Norðlingaskóla kl 16.00.
Ég vonast til að sjá sem flesta á æfingunni, úthvílda og tilbúna til að taka aftur á því.

kær kv,

Hemmi þjálfari
hemmi88@msn.com