Hæ hæ og takk fyrir frábæra helgi. Drengirnir til fyrirmyndar í einu og öllu og þéttur og góður foreldrahópur gerði þessa helgi hina mestu skemmtun og allt gekk eins og í sögu.
Þessi vika er aðeins frábrugðin öðrum.
Mánudagur - Frí
Þriðjudagur Páskaleikarnir - þrautir og leikir og glæsileg verðlaun. Árbæjarskóli kl. 16:40
Fimmtudagur Keila og Pizza í Egilshöll kl. 18:30 - Keila í klukkutíma og matur kl. 19:30. Búið ca. 20:15
Ég geri ráð fyrir að allir mæti í keilu og pantaði fyrir 32 stráka. Þið þurfið því bara að láta mig vita ef ykkar kemst ekki. Ég þarf að vita það fyrir kl. 10 á morgun þriðjudag. 2000 kr. og greiðist á staðnum í seðlum.
Skólahúsin eru svo lokuð frá og með 14. apríl til 22. apríl og svo er líka lokað sumardaginn fyrsta (24. apríl) Það eru því engar æfingar 14,15 og 17. apríl og ég ætla svo að fá eina æfingu fyrir allan hópinn í Fylkishöll dagana 22. eða 23. apríl.
kv. Þjálfarar
No comments:
Post a Comment