Monday, April 29, 2013

Pizzuveisla

Sælir strákar og foreldrar,

Í dag var síðasta æfing vetrarins. Því hef ég ákveðið að boða strákana í pizzuveislu til að slútta tímabilinu og kveðja þá fyrir sumarið.
Pizzuveislan verður á föstudaginn nk. kl 17.00- 19.00 í Fylkishöll. Á meðan pizzurnar verða snæddar, verður horft á einhverja skemmtilega mynd, en strákarnir mega koma með mynd sem þeir vilja að verði sýnd.

Þeir sem vilja koma og taka þátt í þessu verða að koma með 1000 kr og auðvitað góða skapið líka.

Ég vil að foreldrar nefni að við strákana að forsenda þess að við fengum að vera aftur með pizzuveislu var góð umgengni síðast og að ég fari fram á að þeir gangi aftur vel um og hegði sér vel.

Einnig vil ég biðja þá sem eiga eftir að greiða æfingagjöld að gera það sem fyrst. Mikil vinna fer í að innheimta alla sem eiga eftir að borga nú í lok tímabils. Það myndi auðvelda vinnuna til muna að fólk kæmi og borgaði af fyrra bragði.

Að lokum vil ég biðja alla foreldra að senda mér kennitölu síns barns á e-mailið mitt hér að neðan.


Kær kv,

Hemmi þjálfari
hemmi88@msn.com
6639443

Monday, April 15, 2013

Selfoss mótið



Handboltamót á Selfossi – Fylkir 7. Flokkur karla. Næsta helgi.
Description: Description: 첮쇻



Gisting, matur o.fl.
Þegar við komum er tekið á móti okkur í anddyri Vallaskóla og allir geta lagt frá sér farangur í sínum stofum.
Leikið er í íþróttahúsum Vallaskóla og FSu er liggja nánast hlið við hlið. Öll lið gista í Vallaskóla og er mötuneytið þar. Innangengt er úr skólanum í íþróttahúsið.  Borðað er í matsal Vallaskóla og eru fararstjórar beðnir um að fylgja sínum liðum í matartímum.
·         Kvöldmatur er frá 18-20
·         Morgunmatur er frá 8-10
·         Hádegismatur frá 11-13
Kvöldvakan er í íþróttahúsi Vallaskóla frá kl 9-10

3- foreldrar gista með strákunum. Mega vera fleiri ef pláss leyfir.

Einhver talar við Björn í MS vegna mjólkurvara.
Foreldrar Haralds sjá um að koma með samlokugrill.
Snæbjörn er búinn að redda brauði

Redda þarf skinku.
Búið var að redda ávöxtum, man ekki hver tók það að sér.
Líka búið að redda djús, man það heldur ekki
Strákarnir mega gjarnan taka með sér einhverja drykki til að skola niður samlokum s.s. 3 pakka safa/trópí/svala (má líka vera vatn).  Þeir mega taka með sér smá nesti (samt varla þörf á) en það eiga ekki að vera sætindi.  Gosdrykkir og nammi er bannað. 
Strákarnir þurfa engann vasapening.

Dýrir hlutir eins og GSM, Ipod, leikjatölvur og annað eru bannaðir, enda engin þörf fyrir þá.  Það er hægt að ná í strákana í gegnum liðsstjóra og þeir fá að hringja ef á þarf að halda.
Foreldrar eru beðnir um að hjálpast að við að taka til í skólastofum á sunnudegi eftir mót og sjá til þess að stofunum sé skilað eins og við komum að þeim.


Kostnaðurinn er 5.500,- á hvern iðkenda.  Innifalið er skv. Mótshaldara er tvær heitar máltíður (kvöld og hádegi) og morgunmatur, gisting í Vallaskóla, keppnisgjald, frítt í sund, bolur eða bolti, opið í Félagsmiðstöð Selfoss, útihandboltavellir og kvöldvaka á laugardagskvöld (skrúðganga, sýningarleikur, reipitog, þrautir o.fl.)
Reiknisnúmer Lóu er 525 – 26 – 106665   kt. 220264-4839, en hún sér um að innheimta.  Setja nafnið á stráknum í skýringu, prenta út kvittun og hafa með.  Við bættum við 500 kr v/samloku milli leikja og ávaxta fyrir allann hópinn.

Athugið einnig að ganga frá æfingagjöldum hjá Fylki fyrir brottför!

Til minnis
Gott að hafa mér sér, listinn ekki tæmandi:
·         Svefnpoki / sæng + koddi
·         Dýna / vindsæng + lak á dýnuna, best  að vera með einbreiða dýnu (pláss).
·         Sundföt + Handklæði
·         Náttföt
·         Tannbursta + Tannkrem
·         Innanhússskó
·         Appelsínugulum fötum (Fylkis galla)
·         Hvíta sokka
·         Keppnistreyju, þeir sem eiga (aðrir fá treyjur á staðnum) og svartar stuttbuxur
·         Vatnsbrúsa, merkja vel.
·         Auka föt, húfu og vetlinga.
·         Auka nærföt
·         Hælsærisplástur
·         Góða skapið og allir að vera vinir, stilltir og prúðir,  Fylkir er alltaf prúðasta liðið.
Ef strákarnir hafa einhverjar sérþarfir, eins og t.d. ofnæmi, lyf eða mat eða eitthvað annað látið þá fararstjóra vita. Best að hafa allann farangur í einni tösku, og merkja töskuna vel, gott að láta strákana taka þátt í að pakka svo þeir viti hvað þeir eru með.  Muna að merkja allann fatnað.
 Framkoma foreldra skiptir máli. Drögum ekki í efa hæfni dómara svo leikmenn heyri til. Foreldrar og stuðningsmenn liða endurspegla þann anda sem er í hverju félagi. Verum okkar félagi til sóma.

Dagskrá - áætlun
 Laugardagur:
11:15 Mæting í Fylkishöllina
11:30 Lagt af stað á einkabílum, eða rútu ef svo verður
12:30  Mæting á Selfossi – setja dót í stofu
13:12 Fyrstu leikir hefjast
17:50 Síðasta lið klárar leiki dagsins
Sund?
19:30 Kvöldmatur
21:00 Kvöldvaka
22:30 Allir að sofa

Sunnudagur:
08:15 Vakna og morgunmatur
08:50 Ganga frá dótinu og stofu
9:12   Fyrsti leikur hefst
13:50  Síðasta lið lýkur keppni

 Liðaskipan og leiktímar
Liðaskiptan
Lið 1
Emil, Haraldur, Magnús, Marteinn
Lið 2
Svavar, Stefán, Bjarki, Andri
Lið 3
Ásgeir, Jóhannes, Björn, Óskar
Lið 4
Ridis, Símon, Arnór, Einar, Ingimar

Það eru ekki allir af þessum búnir að staðfesta, en ég setti alla inn sem hafa verið að mæta undanfarið og hafa nú þegar ekki afboðað sig.
Leiktímar

Lið 1 og 2 leika leiki sína í IÐU á laugardeginum og vallaskóla á sunnudeginum. Hjá liðum 3 og 4 er það einmitt öfugt.
Lið 1 :
Lau kl 13:24   Fylkir- Selfoss
Lau kl 14:12   Fylkir- Stjarnan
Lau kl 15:00   Fylkir- Grótta
Sun kl 09:24  Fylkir- ÍR
Sun kl 10:12  Fylkir- Selfoss3
Sun kl 11:00  Fylkir- ÍR2
Lið 2:
Lau kl 15:24  Fylkir- Afturelding 3
Lau kl 16:36  Fylkir- ÍR
Lau kl 17:36  Fylkir- HK Kársnes
Sun kl 11:24 Fylkir- Afturelding 5
Sun kl 12:36 Fylkir- Afturelding 5 (aftur)
Sun kl 13:36 Fylkir- Valur
Lið 3:
Lau kl 13:12  Fylkir- Grótta
Lau kl 14:12  Fylkir- HK Digranes 5
Lau kl 15:12  Fylkir- Selfoss 6
Sun kl 09:12  Fylkir- Haukar
Sun kl 10:12 Fylkir- HK Digranes
Sun kl 11:12 Fylkir- Selfoss 5
Lið 4:
Lau kl 13:24  Fylkir- ÍR
Lau kl 14:24  Fylkir- HK Digranes 6
Lau kl 15:25  Fylkir- Selfoss 7
Sun kl 09:24  Fylkir- Grótta
Sun kl 10:24  Fylkir- HK Digranes 5
Sun kl 11:24  Fylkir- Selfoss 6

Þá er þetta loksins komið. Vona að ég sé ekki að gleyma neinu. Ef einhver er með spurningu eða athugasemd hafið samband í síma 663-9443 eða sendið mail á hemmi88@msn.com
Kveðja
Hemmi þjálfari.

Foreldrafundur

Sæl,
Minni á foreldrafundinn kl 19.30 í kvöld! Mikilvægt er að allir mæti.


Kv, Hemmi þjálfari

6639443
hemmi88@msn.com