Wednesday, March 19, 2014

Selfoss mót

Síðasta mót vetrarins á Selfossi 4. - 6. apríl

Skráning á mótið er hafin og ég ætla að biðja ykkur að setja komment á Facebook eða senda mér tölvupóst á omarj@siminn.is sem staðfestir það að ykkar drengur muni mæta. Stráka spila laugardag til sunnudags. Foreldrafundur verður haldinn þriðjudaginn 25. mars kl. 19:30 þar sem farið verður betur yfir skipulag og annað varðandi mótið.

Fyrirkomulag:

Helgina 4.-6. apríl verður Landsbankamótið í 7.flokki stráka og stelpna haldið á Selfossi.
Mótið er síðasta mót vetrarins.
Þetta er fjórða árið í röð sem 7.flokkur fær svona stórt mót og hefur þetta tekist mjög vel síðustu tvö ár.
Leikið er á þremur völlum í íþr.húsi Vallaskóla og á þremur völlum í íþr.húsi FSu. Aðeins eru 50 m.milli húsanna, gisting og matur eru í Vallaskóla.
Fyrirkomulagið er þannig að stelpurnar byrja klukkan fjögur á föstudegi og ljúka keppni um hádegi á laugardegi.
Þá taka strákarnir við og spila fram yfir hádegi á sunnudegi.
Þetta er mun stærra mót en fyrri mót vetrarins, öll lið leika 3-4 leiki hvorn dag.

Þátttökugjald er kr. 5.000 pr. þátttakanda, þetta er svokallað “pakkamót” og er innifalin gisting í eina nótt, tvær heitar máltíðir og morgunverður.
Einnig verður haldin kvöldvaka og frítt er í sund á meðan á móti stendur.
Foreldrar og þjálfarar gista frítt.

No comments:

Post a Comment