Hæ hæ
Æfingatímamálið. Ekki er hægt að skipta upp hópnum á þriðjudögum þar sem ekki fæst annar tími samliggjandi. Ég vil ekki færa þetta yfir á mánudaga þar sem það býr til önnur vandamál, 4. flokkur kvenna fær minni tíma (ætlaði að taka hálfan sal af þeim í Fylkishöll), það er fótboltaæfing hjá þeim á mánudögum, það eru einhverjir í parkour á mánudögum, 19-20 er í seinna fallinu fyrir þennan aldur.
Ég mun halda áfram að vinna að lausn og við munum halda þessum tveimur tímum á þriðjudögum og fimmtudögum. Það verður þá alltaf skot og tækni á þriðjudögum og spila á fimmtudögum til að nýta sem best hvorn sal fyrir sig.
Einnig mun ég vera vakandi fyrir aukaæfingum eða æfingaleikjum sem hægt verður þá að bæta við eins og ég hef fengið tíma kl. 17 í Fylkishöll núna tvö miðvikudaga í röð. Það er alltaf eitthvað sem losnar og ég reyni að fá eins og ég get. En það yrði þá þriðja æfingin þá vikuna, held áfram þriðjudögum og fimmtudögum þrátt fyrir aukaæfingar. Læt alltaf vita tímanlega með þessar aukaæfingar.
Vonandi mun eitthvað opnast varðandi tímana en í augnablikinu er þetta besta lausnin að mínu mati. Æfingasókn drengjanna og framfarir hafa verið frábær það sem af er og gaman hversu margir nýir eru komnir inn í þetta.
Mér tókst ekki að finna tíma fyrir æfingaleik fyrir þetta mót en það verður aftur stefnt á það seinni partinn í febrúar.
Mótið næstu helgi er á laugardeginum 1. febrúar í Kórnum og spila öll 7 liðin okkar þann daginn. Liðskipan og leikjaplan kemur inn á næstu dögum.
kv. Ómar
No comments:
Post a Comment