Thursday, November 22, 2012

Barna og unglingráð vil minna foreldra á að ganga frá æfingagjöldum sem fyrst. Ef æfingagjöld hafa ekki verið greidd fyrir iðkanda er honum ekki heimilt að taka þátt í mótum sem flokkurinn fer á (gildir frá 1. nóvember fyrir haustönnina og 1. mars fyrir vorönnina).

Wednesday, November 21, 2012

Pizzaveisla!

Sælir strákar og foreldrar,


Næstkomandi föstudag ætlum við strax eftir æfingu að hafa pizzuveislu og einnig ætlum við að horfa á kvikmynd sem Danni ætlar að velja fyrir okkur. Hugmyndin er sú að koma strákunum í bíla og keyra þá beint niður í Fylkishöll eftir æfinguna. Þegar allir eru komnir þangað byrjum við að horfa á myndina en í millitíðinni verð ég búinn að panta pizzuna og fer í kjölfarið að sækja hana. Balli kemur til með að hafa umsjá með strákunum á meðan ég er að sækja pizzuna.

Planið lítur því svona út:

17      - 18       Æfing
18:15 - ca.20   Kvikmynd og pizza


Þeir sem ætla að vera með verða að koma með 1000 kr í peningum.


Kær kv, Hemmi

Tuesday, November 20, 2012

Tilkynning frá íþróttafulltrúa


Tilkynning til foreldra frá Fylki

Stjórn Íþróttafélagsins Fylkis samþykkti í byrjun september að auka verulega þjónustu félagsins við iðkendur og foreldra hvað varðar frístundastrætó Fylkis.  Þessi ákvörðun var tekin á þeim forsendum að þörfin væri mikil og að þetta væri í raun nauðsynlegur hluti af starfsemi félagsins.

Strætóinn hefur gengið  alla virka daga milli kl. 14:00 og 17:00 og geta  allir iðkendur Fylkis  nýtt sér vagninn til og frá æfingum samkvæmt útgefinni dagskrá.   Þeir sem nota vagninn hafa ekki þurft að greiða sérstaklega fyrir þá notkun.

Nú er haustönnin rúmlega hálfnuð og hefur þátttakan verið langt undir væntingum.  Félagið er að borga háar fjárhæðir með rekstrinum og því ekki forsvaranlegt að halda núverandi fyrirkomulagi  áfram eftir áramót miðað við óbreytt ástand.

Ekki er ljóst á þessari stundu hvers vegna foreldrar hafi ekki nýtt sé þetta úrræði betur þar sem þetta sparar þeim mikinn tíma og pening.  Með þessu bréfi viljum við hvetja foreldra til að kynna sér þessa þjónustu og athuga vel hvort þau geti ekki nýtt sé hana.

Frístundavagninn mun keyra samkvæmt núverandi áætlun fram að jólum en á eins og staðan er núna er óljóst hvernig fyrirkomulagið verður eftir áramót.  Fjölgi þeim börnum sem nýta sér vagninn fram að áramótum eru meiri líkur á því að núverandi fyrirkomulag haldist áfram eftir áramót.

Að lokum skal benda á að skráning í vagninn  fer fram á heimasíðu félagsins en allir sem nýta sér þessa þjónustu verða að vera skráðir.


Með kveðju,

Hörður Guðjónsson

Sunday, November 18, 2012

Mótið

Frábær árangur á mótinu!


Sælir strákar og foreldrar,

Strákarnir stóðu sig rosalega vel á mótinu.Við fórum með fimm lið á mótið og stóðu öll liðin sig með prýði. Þeir skoruðu helling af mörkum, spiluðu góða vörn og stóðu sig vel sel sem lið. Í lok móts fengu þeir líka verðlaunapening úr gulli fyrir þátttökuna og góðan árangur!
ÍR tóku nokkrar myndir á mótinu og þegar ég var að renna í gegnum þær sá ég glitta í nokkra Fylkismenn. Hér að neðan eru linkar á myndasíðurnar ef þið viljið skoða en efstu þrír linkarnir eru frá sunnudeginum og neðri fjórir frá laugardeginum;


https://picasaweb.google.com/110492215652211417773/20121118Thinverslunmot14001600

https://picasaweb.google.com/110492215652211417773/20121118Thinverslunmot11301400

https://picasaweb.google.com/110492215652211417773/20121118Thinverslunmot91130

https://picasaweb.google.com/110492215652211417773/20121117ThinverslunmotKl15401730

https://picasaweb.google.com/110492215652211417773/20121117ThinverslunmotKl15401730

https://picasaweb.google.com/110492215652211417773/20121117ThinverslunmotKl15401730

https://picasaweb.google.com/110492215652211417773/20121117ThinverslunmotKl15401730


Annars vil ég þakka strákunum fyrir skemmtilega helgi. Þeir sýndu miklar framfarir og boðar framhaldið gott. Nú er bara að halda áfram að æfa á fullu og þá við munum verða enn betri en næsta æfing er á morgun (mánudag) kl 16:00.


Kv Hemmi þjálfari

hemmi88@msn.com

Tuesday, November 13, 2012

Mótið um helgina (17-18.nóv)

- leikjaplan og liðaskipan

Við förum með alls fimm lið á mótið. Þrjú lið verða í styrkleika 3, eitt í 2 og síðan eitt í 1. styrkleika. Ég er búinn að fá staðfestingu frá 20 strákum og á eftir að fá frá fjórum. Þannig þeir sem eiga eftir að staðfesta gera það ASAP. Mótið fer fram í íþróttahúsinu Austurberg (Breiðholti) og er á vegum ÍR.


Leikmenn í liði 3H;
Arnaldur, Svavar, Emil V., Jóhann F. og Andri


Leikir 3H (spila á sunnudegi);

Mæting 14:00

14:24 Fylkir-HK
14:48 Fylkir-Valur
15:24 Fylkir-Fjölnir
15:48 Fylkir-Selfoss
-------------------------------------------------------------------------------------

Leikmenn í liði 3G;

Jóhannes, Símon, Arnór, Elías og Ísak


Leikir 3G (spila á sunnudegi);

Mæting 13:50

14:12 Fylkir-Fram
14:48 Fylkir-HK
15:12 Fylkir-Fjölnir
15:36 Fylkir-FH
---------------------------------------------------------------------------------------

Leikmenn í liði 3E;

Ásgeir, Óskar, Ingimar, Ívar og Björn


Leikir í liði 3E (spila á laugardegi);

Mæting: 15:30

15:48 Fylkir-Grótta3
16:12 Fylkir-Stjarnan
16:36 Fylkir-Víkingur
17:00 Fylkir- Grótta1
----------------------------------------------------------------------------------------

Leikmenn í liði 2;

Bjarki, Einar, Stefán og Knútur


Leikir í liði 2 (spila á laugardegi);

Mæting 11:00

11:24 Fylkir-Fram1
11:48 Fylkir-ÍR
12:36 Fylkir-Selfoss
13:00 Fylkir-Grótta
13:24 Fylkir-Fram3
-----------------------------------------------------------------------------------------

Leikmenn í liði 1;

Óskar Borgþórs, Emil Á., Haraldur, Daníel og Magnús


Leikir í liði 1 (spila á sunnudegi);

Mæting 08:40

09:00 Fylkir-Víkingur
09:24 Fylkir-Valur
10:12 Fylkir-HK
10:36 Fylkir-KR
11:00 Fylkir-Stjarnan
11:24 Fylkir-FH
------------------------------------------------------------------------------------------


Mikilvægt er að strákarnir mæti á tilsettum mætingartíma.Vonandi eru allir ánægðir með liðið sem þeir eru í. Ég vona að ég sé ekki að gleyma neinum strák og ef einhver tekur eftir því þá má láta mig vita strax.
Ef einhver er með athugasemdir eða spurningar varðandi mótið er þeim velkomið að hringja í mig í s:6639443 eða senda mér mail á hemmi88@msn.com.

Kær kveðja,

Hemmi þjálfari

Tuesday, November 6, 2012


Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að fjölmenna á Villibráðarkvöld Fylkis og kynnast aðeins betur.

Hið árlega Villibráðarkvöld Fylkis verður haldið laugardaginn 17. nóvember. Handknattleiksdeildin hefur staðið fyrir þessum viðburði síðustu ár og er þetta nú eitt glæsilegasta villibráðarhlaðborð landsins. Í fyrra urðu því miður margir frá að hverfa þar sem miðar seldust upp. Að þessu sinni flytjum við því hátíðina upp í Fáksheimili sem rýmra verður um mannskapinn og hægt að taka á móti fleiri gestum.
Veislustjórnin verður að þessu sinni í höndum Bjarna töframanns og einhver skemmtiatriði verða að auki. Áður en matarveislan hefst verður vínkynning; það verður happdrætti með fjölda glæsilegra vinninga og að borðhaldi loknu mun hljómsveitin Með allt að láni leika fyrir dansi líkt og undanfarin ár. Miðaverð er kr. 6.900 og hefst miðasala í afgreiðslu Fylkishallar í byrjun nóvember.
Allir Fylkismenn og aðrir unnendur góðrar villibráðar eru hvattir til að mæta - en þarna fá menn með í kaupunum skemmtun og dansleik til viðbótar við frábært villibráðarhlaðborð, um leið og menn styðja við bakið á mikilvægu íþróttastarfi hjá Fylki.
Líkt og undanfarin ár er matseðillinn einstaklega glæsilegur:

Forréttir:
Hreindýrapaté með sultuðum rauðlauk og heimalöguðu rifsberjahlaupi
Grafið lamb með bláberja-vinaigrette
Grafið og reykt nautafile með piparrótarrjóma
Gæsapaté
Villibráðar-tartar með capers og piparrót
Grafnar gæsabringur
Heitreyktar gæsabringur með jarðarberjasósu
Lax í sítrus
Reykt silungamús með hvítlaukssósu
Laxatartar með capers og lime
Heitreykt önd mað jarðarberjasósu og sesam-rucola
Aðalréttir:
Hreindýrabollur í gráðostasósu
Villikryddaðar gæsabringur
Lamba læri í kryddjurtum
Meðlæti:
Ferskt grænmeti
Waldorf salat
Gratin kartöflur
Rifsberjasulta og rauðlaukssulta
Rauðvínslegnar perur
Villibráðarsósa
Nýbakað brauð
Eftirréttur:
Súkkulaðikaka með berjum og rjóma

Friday, November 2, 2012

Æfingar falla niður í dag vegna veðurs.


Vegna tilmæla  frá  Almannavörnum sem hafa beint því til okkar að hugsa um að börn  verði ekki hleypt einum úr eða í  frístundastarf í dag, en spáð er öðrum veðurhvelli síðdegis.
 
Kveðja 
 
BUR 

Ekki æfing í dag vegna óveðurs!

Sælir strákar og foreldrar,

Vegna óveðurs og tilkynningu almannavarna að fólk eigi ekki að vera á ferli fellur æfingin í dag niður.

Minni á að það er foreldrafundur kl 20.30 þann 5.nóvember (mánudagur) í tengibygginu Fylkishallar. Mikilvægt er að foreldrar mæti á fundinn.


Kær kveðja,

Hemmi þjálfari

s. 6639443
e-mail: hemmi88@msn.com