Thursday, September 12, 2013

Æfingatímar í vetur

Þriðjudagar 16:40 - 17:40 Árbæjarskóli
Fimmtudagar 18:00 - 19:00 Norðlingaskóli

Í 7.flokki karla eru haldin 4 mót og eru þau eftirfarandi:
  • Helgin 11.-13. október - Umsjón Fram
  • Helgin 29.-01. desember - Umsjón Haukar
  • Helgin 31.-02. febrúar - Umsjón HK
  • Helgin 04.-06. apríl - Umsjón Selfoss 
Búið er að stofna Facebook grúppu fyrir flokkinn þar sem allar upplýsingar koma fram varðandi æfingar, mót o.fl.

https://www.facebook.com/groups/530858140328148/


kv. Ómar þjálfari
omarj@siminn.is
8626207

Monday, September 2, 2013


Nú er handboltavertíðin hafin og æfingar hjá öllum yngri flokkum byrja í þessari viku.

Mikilvægt er að foreldrar skrái börnin sín strax í nýja skráningarkerfið sem Fylkir hefur tekið í notkun. Ef þið hafið ekki notað þetta áður þá þarf að nýskrá barnið í fyrstu en síðan er barnið skráð á hvert og eitt námskeið sem það hyggst taka þátt í.  Nora skráningakerfið er aðgengilegt á heimasíðu Fylkis  fylkir.com og þar er einnig að finna handbók sem leiðir ykkur áfram.  Ef eitthvað er óljóst í sambandi við skráningarferlið þá endilega hafið samband við starfsfólk Fylkishallar.

Hér koma nokkrar gagnlegar upplýsingar varðandi fyrirkomulag æfingargjalda handboltans þennan vetur.

  • Þeir sem fullgreiða æfingargjöldin fyrir lok 30. September fá 10% staðgreiðsluafslátt af  æfingargjöldunum
  • Systkinaafsláttur er 5% sem reiknast á öll systkin
  • Það er 5% millideildarafsláttur milli allra deilda  innan Fylkis
  • Hægt er að greiða með kreditkorti eða greiðsluseðli og dreifa  greiðslum til 3. mánaða.  Athugið að kr. 390 leggst ofan á hverja greiðslu greiðsluseðla. 

Frístundavagn Fylkis mun frá og með 9. september 2013 til 30. apríl 2014 keyra samkvæmt   skipulagi í tengslum við æfingar í Norðlingaholti, í Árbæjarskóla og á Fylkissvæðinu við Fylkisveg.  Hægt er að sjá áætlun frístundavagnsins á heimasíðu Fylkis  fylkir.com  Foreldrar eru eindregið hvattir til að nýta sér þennan þægileg fararmáta fyrir barnið.