Monday, April 29, 2013

Pizzuveisla

Sælir strákar og foreldrar,

Í dag var síðasta æfing vetrarins. Því hef ég ákveðið að boða strákana í pizzuveislu til að slútta tímabilinu og kveðja þá fyrir sumarið.
Pizzuveislan verður á föstudaginn nk. kl 17.00- 19.00 í Fylkishöll. Á meðan pizzurnar verða snæddar, verður horft á einhverja skemmtilega mynd, en strákarnir mega koma með mynd sem þeir vilja að verði sýnd.

Þeir sem vilja koma og taka þátt í þessu verða að koma með 1000 kr og auðvitað góða skapið líka.

Ég vil að foreldrar nefni að við strákana að forsenda þess að við fengum að vera aftur með pizzuveislu var góð umgengni síðast og að ég fari fram á að þeir gangi aftur vel um og hegði sér vel.

Einnig vil ég biðja þá sem eiga eftir að greiða æfingagjöld að gera það sem fyrst. Mikil vinna fer í að innheimta alla sem eiga eftir að borga nú í lok tímabils. Það myndi auðvelda vinnuna til muna að fólk kæmi og borgaði af fyrra bragði.

Að lokum vil ég biðja alla foreldra að senda mér kennitölu síns barns á e-mailið mitt hér að neðan.


Kær kv,

Hemmi þjálfari
hemmi88@msn.com
6639443

No comments:

Post a Comment