Friday, February 15, 2013

Æfingar

Sælir strákar og foreldrar,

Mótið um daginn gekk frábærlega og var hrikalega gaman að sjá hvað strákarnir hafa bætt sig. Einnig lögðu þeir sig alla fram og flottir taktar sáust margoft á mótinu. Ljóst er að ef þeir halda áfram verða þeir betri og betri með hverri æfingu.

Æfingar hjá okkur ganga vel að mestu leiti. Eitt vandamál sem ég vil nefna er að ég hef orðið var við ljótt orðbragð strákanna í samskiptum þeirra á milli. Bið ég foreldra um að tala við sína stráka og brýna fyrir þeim að þetta er ekki liðið á æfingum hjá mér né í búnigsherbergjum fyrir og eftir æfingar.


Kær kveðja,

Hemmi þjálfari
hemmi88@msn.com

No comments:

Post a Comment