Wednesday, January 23, 2013

Mótið

Sælir strákar og foreldrar,

Nú er ég kominn með niðurröðun leikja á mótinu og fyrirkomulagið er þannig að allir leikir okkar Fylkis-stráka eru spilaðir á laugardeginum.
Áður en ég skipti í lið þarf ég fleiri staðfestingar til þátttöku. Þegar þetta er skrifað hefur verið staðfest þátttaka fyrir 17 stráka sem er ekki nóg miðað við liðafjöldann sem ég skráði á mótið. Ég skráði 5 lið á mótið og þar sem lágmarksfjöldi í hverju liði er 4 þarf ég þrjá fleiri stráka, hið minnsta. Ef þeir verða ekki fleiri en 20 vil ég jafnvel fækka liðum og hafa einn varamann í hverju liði þar sem mín reynsla er sú að töluvert er um forföll hjá strákum á þessum aldri þegar um mót er að ræða.
Svo ég geti farið að skipuleggja þetta vil ég að foreldrar staðfesti þátttöku í síðasta lagi á föstudaginn.

Einnig vil ég biðja ykkur forráðamenn/foreldrar að ganga frá æfingagjöldum fyrir mótið.


kær kv,

Hemmi

e-mail: hemmi88@msn.com

No comments:

Post a Comment