Friday, December 14, 2012

Síðasta æfing og handboltanámskeið milli jóla og nýárs


Sælir strákar og foreldrar.


Síðasta æfing fyrir jól er nú í dag, þann 14.des. Við ætlum að hafa gaman á æfingu t.d. með því að hafa vítakeppni í lokin. Vonast til að sjá sem flesta því þetta er jú síðasta æfing fyrir jólafrí.

Síðan eru hér upplýsingar fyrir þá sem eru áhugasamir um handboltanámskeiðið sem er í boði milli jóla og nýárs;



Heil og sæl

Nú hafa um tuttugu flottir krakkar skráð sig á handboltanámskeið milli jóla og nýárs, og þjálfararnir bíða spenntir eftir að kenna þeim.  J

Þú hefur skráð barnið þitt á námskeið milli jóla og nýárs.
Greiða  þarf námskeiðið fyrr 20.desember  inn á reikning barna- og unglingaráðs hkd, 331-26-5805, kennitala 571083-0519.
4500 kr.  Senda kvittun á fylkirburh@gmail.com skýring: nafn barns.

Einstaklingsmiðað námskeið fyrir krakka fædd árin 1999-2003, bæði stráka og stelpur. Lögð verður sérstök áhersla á þjálfum í smærri hópum, einstaklingsmiðuð þjálfun. Þjálfarar Fylkis verða leiðbeinendur á námskeiðunum.
Alla Gokorian og Hildur Björnsdóttir verða með stelpurnar og Bjarki Már Elísson og Hermann Guðmundsson með strákana. Námskeiðin verða á eftirfarandi dögum:
Námskeiðið er dagana 27., 28. kl. 10:30-13:00 og 29. desember frá kl. 9:00-11:30 í Fylkishöll.
Hámarksfjöldi á hvort námskeið eru 20 stelpur og 20 strákar og fyrstir koma fyrstir fá. Skráning fer fram á netfanginu fylkirburh@gmail.com  
Verð á námskeiði er 4500 kr. Ef foreldrar vilja gefa þetta í jólagjöf vinsamlegast getið þess í pósti (við skráningu og þið fáið gjafabréf sent til baka sem þið getið prentað út). Gott er að iðkendur komi með hollt nesti vatnsbrúsa og  sinn eigin bolta á námskeiðið.




Þeir sem vildu gjafabréf, þá er hægt að nálgast það í Fylkishöll eftir 20.desember.


Kv,  Hemmi
S: 6639443

No comments:

Post a Comment