Sælir strákar og foreldrar,
Næstkomandi föstudag ætlum við strax eftir æfingu að hafa pizzuveislu og einnig ætlum við að horfa á kvikmynd sem Danni ætlar að velja fyrir okkur. Hugmyndin er sú að koma strákunum í bíla og keyra þá beint niður í Fylkishöll eftir æfinguna. Þegar allir eru komnir þangað byrjum við að horfa á myndina en í millitíðinni verð ég búinn að panta pizzuna og fer í kjölfarið að sækja hana. Balli kemur til með að hafa umsjá með strákunum á meðan ég er að sækja pizzuna.
Planið lítur því svona út:
17 - 18 Æfing
18:15 - ca.20 Kvikmynd og pizza
Þeir sem ætla að vera með verða að koma með 1000 kr í peningum.
Kær kv, Hemmi
No comments:
Post a Comment